Vefsíðan samanstendur af tveimur síðum: Forsíðu með lista af myndböndum, og vídjóspilara síðu þar sem hægt er að horfa á vídjó.
Verkefnið er geymt á GitHub og notast skal við git
til að sækja verkefnið og þegar gerðar eru breytingar.
Í verkefninu notum við node.js
. Til að nota það þarf að setja það upp, og fara svo í /gogn
möppuna (í command line, terminal eða öðru skipanalínuforriti) og nota npm run dev
til að keyra síðuna. Ef til vill þarf fyrst að gera npm install
til að sækja alls konar sem hægt er að nota, t.d. browser-sync, scss og babel.
Þegar unnið er í verkefninu skal keyra npm run dev
og þá opnast vafri með vefsíðunni á localhost. Einnig munu allar skrár (.css og compiled_js skrár) uppfærast sjálfkrafa þegar javascript og Sass skjöl eru vistuð.
Lýsing á uppsetningu verkefnis, hvernig því er skipt í möppur, hvernig CSS er skipulagt og fleira sem á við
Í rót verkefnisins er þessi README.md skrá, og tvær skrár með lýsingu á markmiði verkefnisins, annars vegar stort-verkefni2.md
og hins vegar stort-verkefni2.pdf
. Auk þess eru fjórar myndir með fyrirmynd um hvernig kennari hafi séð fyrir sér að vefsíðan ætti að líta út. Allur kóði síðunnar er svo í /gogn
möppu.
Í /gogn
möppu eru package.json
, .stylelintrc
, .eslintrc.js
, .babelrc
og svo allur html og javascript kóði fyrir síður verkefnisins. Útlit síðunnar er í styles.css
skjali. Ath. að ekki skal eiga við styles.css
beint, heldur eru allar stílbreytingar gerðar í .scss
skrám (sjá neðar).
Í /img
möppu eru myndir fyrir takka á spilara, og í /videos
möppu eru öll vídjó síðunnar. Upplýsingar um myndbönd eru að finna í videos.json
skrá.
Við notumst við SASS tæknina í þessu verkefni. Í /scss
möppu er að finna allar .scss
skrár sem við notum. Þegar npm run dev
er keyrt í skipanalínu þá er hægt að gera breytingar í .scss
skrám og þær breytingar færast sjálfkrafa í styles.css
og birtast þar með á síðunni. Aldrei þarf að eiga beint við skjalið styles.css
.
Við notum lint
í css og javascript. Keyra skal npm run lint -s
til að skoða hvort einhverjar lint
reglur séu brotnar.
Einnig er hægt að nota ES2015, og babel
sér um að compile-a öllum javascript skrám í /gogn
möppu. Í möppunni compiled_js
er að finna þær javascript skrár sem babel býr til.
Þeir sem unnu verkefnið eru:
HÍ email: [email protected]
GitHub Username: birkirfreyrg
HÍ email: [email protected]
GitHub Username: omarpall
HÍ email: [email protected]
GitHub Username: TheGuitarMonkey